Fara í efni

Lausar kennarastöður við Öxarfjarðarskóla

Öxarfjarðarskóli sem staðsettur er í Lundi við Öxarfjörð, er samrekinn leik-og grunnskóli með tæplega 60 nemendur skólaárið 2025-2026, þar af 37 í grunnskóladeild. Leikskóladeild skólans er innahúss í grunnskólanum.
Skólinn starfar í anda Jákvæðs aga og teymisvinnu.
Um er að ræða samkennslu árganga í þremur deildum; yngri (1.-4.b), miðdeild (5.-7.b) og unglingadeild (8. - 10.b)

Leitað er eftir:
• Tveimur umsjónarkennurum í teymi á mið- og unglingastigi í 100%
• Umsjónarkennara á yngsta stigi í 100%
• Íþrótta- og sundkennara í 40%
• Smíðakennara og í valgreinar

Helstu verkefni og ábyrgð:
• Umsjónarkennsla í teymi
• Íþrótta- og sundkennsla
• Smíðakennsla allra árganga og valáfangar

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
• Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu
• Áhugi á að starfa með börnum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Hafa á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum nemenda
• Ábyrgð og stundvísi

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 31. maí og skulu umsóknir sendar ásamt ferilskrá, afrit af prófskírteinum og meðmælum til skólastjóra á netfangið hrund@oxarfjardarskoli.is sem veitir einnig allar frekari upplýsingar.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð.