Fara í efni

Lausar stöður við leikskóladeildir Öxarfjarðarskóla

Auglýst er eftir leikskólakennurum til starfa með leyfisbréf til kennslu og öðru starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Störfin henta hvaða kyni sem er. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, útikennsla og leikur. Starfað er eftir skólanámskrá og deildarnámskrá leikskóladeilda Öxarfjarðarskóla.

Um er að ræða þrjár stöður:
-Deildarstjóri á Kópaskeri – 100% staða
-Leikskólakennari á Kópaskeri – 100% staða
-Leikskólakennari í Lundi – 100% staða
-Leikskólakennari í afleysingar með starfsstöð á báðum leikskóladeildum; Lundi og Kópaskeri – 100% staða

Smellið á auglýsingu hér til hliðar fyrir nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2022.

Allar frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 465-2246 eða á hrund@nordurthing.is