Fara í efni

Laust starf í Borginni frístund og skammtímadvöl

Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir 80% starf í Borginni frístund og skammtímadvöl.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Í Borginni er boðið upp á frístundarstarf og skammtímadvöl fyrir börn með langvarandi stuðningsþarfir. Áhersla er lögð á frjálsan leik, val og þátttöku barnanna með það að markmiði að efla félagsfærni, sjálfstæði og vellíðan.

Helstu verkefni:

  • Að veita börnum einstaklingsmiðaðan stuðning og þjónustu.
  • Að skipuleggja og taka þátt í leik, tómstundum og fjölbreyttum verkefnum.
  • Að stuðla að öryggi, vellíðan, sjálfstæði og virkri þátttöku barnanna.
  • Samvinna við foreldra, samstarfsfólk og aðra fagaðila.
  • Almenn heimilisstörf og önnur verkefni sem tengjast starfseminni.

Hæfniskröfur:

  • Hafa náð 18 ára aldri.
  • Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur.
  • Áhugi á að vinna með börnum og fjölskyldum.
  • Jákvætt viðmót, sveigjanleiki og góð samskiptahæfni.
  • Frumkvæði, ábyrgð og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð og bílpróf.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Allt áhugasamt fólk er hvatt til að sækja um.
Starfsferilskrá og kynningarbréf skulu fylgja umsókninni ásamt tveimur meðmælendum sem hafa má samband við ef til þess kemur.

Sækja um starf í Borginni frístund og skammtímadvöl - 50skills

Nánari upplýsingar veitir Iris Myriam Waitz, forstöðumaður Borgarinnar, fyrirspurnir skulu sendar á netfangið irisw@nordurthing.is

Umsóknarfrestur er til 30.09.2026