Fara í efni

Laust starf í sundlaug Húsavíkur

Fullt starf kvenkyns sundlaugarvarðar við Sundlaug Húsavíkur er laust til umsóknar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi.

Sundlaug Húsavíkur er opin alla daga vikunnar og starfsfólk vinnur á tveimur vöktum við sundlaugarvörslu, afgreiðslu og þrif.

Starfslýsing:
Starfar við öryggisgæslu í sundlaug. Helstu verkefni eru öryggisgæsla við sjónvarpsskjá og laug auk eftirlits með öryggiskerfum. Önnur verkefni eru afgreiðsla og baðvarsla. Umsjón með öryggi sundlaugargesta í og við laug.

· Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna.
· Leiðbeina gestum eftir því sem við á.
· Eftirfylgni með umgengnisreglum.
· Eftirlit með gæðum laugarvatns.
· Umsjón með hreinlæti í og við laug.

Menntunar- og hæfniskröfur
· Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
· Gerð er krafa um íslenskukunnáttu á stig A1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
· Umsækjendur verða að eiga gott með að umgangast fólk, hafa góða þjónustulund og vera stundvísir.
· Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf laugavarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði og hafa lokið námskeiði í skyndihjálp.
· Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
· Mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
· Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2023.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til forstöðumanns Sundlaugar Húsavíkur á netfangið harpa@nordurthing.is

Nánari upplýsingar eru veittar í Sunlaug Húsavíkur í síma 464 6190 eða með fyrirspurnum á netfangið harpa@nordurthing.is