Laust starf verkstjóra þjónustumiðstöðvar á Raufarhöfn
Norðurþing auglýsir laust til umsóknar á Raufarhöfn starf verkstjóra þjónustumiðstöðvar, sem ber einnig ábyrgð á hafnarvörslu. Starf verkstjóra getur einnig náð til Kópaskers og nágrennis ef við á.
Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, ríkri samskiptafærni, með gott verkvit og er sjálfstæður í vinnubrögðum.
Verkstjóri er yfirmaður þjónustumiðstöðvar á Raufarhöfn, sem sinnir m.a. fasteignum sveitarfélagsins og fjölmörgum verkefnum hjá sveitarfélaginu.
Auk þess að ber verkstjóri ábyrgð á hafnarvörslu og vigtunum.
Um er að ræða 100% starf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 5. janúar 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umhirða og almennt viðhald á fasteignum sveitarfélagsins á Raufarhöfn.
Náin samvinna við sviðsstjóra og verkefnastjóra eignarsjóðs.
Hluti af starfinu er ábyrgð á að sinna almennri hafnarvörslu ásamt þeim skyldum sem því fylgir, annast vigtun og önnur verkefni sem sviðsstjóri eða hafnarstjóri kann að óska eftir á hverjum tíma. Í starfinu felst að afleysing á Kópaskeri geti komið upp.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur.
- Ökuréttindi skilyrði
- Vinnuvélaréttindi og aukin ökuréttindi kostur
- Löggild vigtarréttindi
- Geta til að vinna í teymi og sjálfstætt
- Stjórnunarreynsla er æskileg
- Fagleg vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2026. Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir:
Elvar Árni Lund, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í síma 464-6122 eða á netfanginu elvar@nordurthing.is