Fara í efni

Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskóladeild Öxarfjarðarskóla

Lundarkot er leikskóladeild innan Öxarfjarðarskóla sem staðsettur er í Lundi við Öxarfjörð. Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli með tæplega 60 nemendur skólaárið 2025-2026, þar af 20 börn í leikskóladeild. Leikskóladeild skólans er innanhúss í grunnskólanum og starfar í anda jákvæðs aga og uppeldisstefnu Johns Dewey. Samstarf er milli leik- og grunnskóla. Leitað er eftir þremur leikskólakennurum í 100% stöður sem þurfa að geta hafið störf um miðjan ágúst.

Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Góð íslenskukunnátta
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna
• Áhugi á að starfa með börnum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Stundvísi og reglusemi

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 31.maí og skulu umsóknir sendar ásamt ferilskrá, afrit af prófskírteinum og meðmælum til skólastjóra á netfangið hrund@oxarfjardarskoli.is sem veitir einnig allar frekari upplýsingar.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð.