Listamaður Norðurþings 2026
Á opnunarhátíð Mærudaga 2026 var Frímann Sveinsson útnefndur Listamaður Norðurþings 2026.
Frímann, sem flestir þekkja sem Frímann kokk, er fæddur árið 1955 í Hafnarfirði. Að loknu gagnfræðaprófi frá Flensborgarskóla hóf hann nám við Hótel- og veitingaskóla Íslands þar sem hann lærði matreiðslu og lauk sveinsprófi árið 1972. Hann starfaði alla sína starfsævi við matreiðslu og gegndi síðustu sautján árin starfi yfirmatreiðslumanns á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík þar til hann lét af störfum árið 2023.
Samhliða starfsferlinum hefur Frímann alla tíð ræktað mikinn áhuga á myndlist. Hann hefur sótt fjölmörg námskeið í vatnslitamálun hjá þekktum listamönnum og þróað með sér persónulegan myndlistarstíl. Á síðustu tuttugu og fimm árum hefur hann haldið fjölmargar einkasýningar á Húsavík, Akureyri, í Neskaupstað og Hafnarfirði, auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga. Verk hans voru fyrst og fremst innblásin af landslagi nærumhverfisins en á síðari árum hefur stíll hans þróast í átt að fígúratífum verkum með klippiívafi. Í vor hélt hann sýningu í Bjarnahúsi sem hlaut afar góðar viðtökur.
Tónlist hefur einnig skipað stóran sess í lífi Frímanns frá unga aldri. Hann lærði snemma að leika á gítar og hefur í áratugi verið virkur í söng- og tónlistarlífi Húsavíkur. Undanfarin tuttugu ár hefur hann haldið reglulegar söngstundir fyrir íbúa á Skógarbrekku og Hvammi og jafnframt lagt kirkjustarfi Húsavíkur lið með söng og hljóðfæraleik. Þá hefur hann einnig komið fram við fjölmörg tækifæri fyrir eldri borgara og glatt þá með tónlist sinni.
Með útnefningunni vill Norðurþing heiðra Frímann fyrir fjölbreytt og óeigingjarnt framlag hans til lista-, menningar- og samfélagslífs sveitarfélagsins. Með myndlist sinni, tónlist og áralangri samfélagsþátttöku hefur hann auðgað mannlíf í Norðurþingi og veitt fjölmörgum gleði og innblástur.
Norðurþing óskar Frímanni Sveinssyni innilega til hamingju með nafnbótina Listamaður Norðurþings 2026, þakkar honum fyrir ómetanlegt framlag hans til lista og samfélagsins í gegnum árin og hlakkar til samstarfsins við hann sem Listamann Norðurþings á komandi ári.