Fara í efni

Loka þarf útkeyrslunni frá íþróttahúsinu út á Stóragarð

Vegna framkvæmda hjá Orkuveitu Húsavíkur þarf að loka útkeyrslunni frá íþróttahúsinu út á Stóragarð.

Lokunin mun standa yfir frá og með deginum í dag, 1. október og fram eftir degi á föstudag 2. október. 

Við vonum að þetta valdi sem minnstum óþægindum.

Með kveðju,
Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur.