Lokað fyrir heitt vatn í Auðbrekku
24.08.2026
Tilkynningar
Skrúfað verður fyrir heitt vatn í Auðbrekku mánudaginn 24. ágúst frá klukkan 16:00 til 18:00 vegna viðgerðar á dreifilögninni. Lokunin nær frá sjúkrahúsinu upp að fjárhúsum og hesthúsum. Hús merkt með rauðri stjörnu verða án heits vatns á meðan á framkvæmdum stendur.