Fara í efni

Lokað fyrir heitt vatn í Reykjahverfi

Vegna tengingar á stofnlögn í Reykjahverfi, frá Þverá að flugvelli, verður lokað fyrir heitt vatn miðvikudaginn 19. ágúst frá kl. 10:00 um morguninn og fram eftir degi.

Jafnframt má búast við vatnsleysi í sumarbústaðarhverfinu við Þverá á meðan framkvæmdum stendur.

Við hvetjum íbúa til að huga að búnaði sínum og gera viðeigandi ráðstafanir meðan á lokun stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.


Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur