Lokun á köldu vatni fimmtudaginn 29. október
27.10.2026
Tilkynningar
Vegna vinnu við stofnlögn við Hvamm verður lokað fyrir kalt vatn fimmtudaginn 29. október frá kl. 16:00 og fram eftir degi.
Á meðfylgjandi korti má sjá áhrifasvæðið:
🔴 Rautt svæði: Hús á svæðinu verða vatnslaus meðan á lokun stendur.
🟡 Gult svæði: Búast má við lækkun á vatnsþrýstingi meðan á framkvæmdum stendur.
Íbúar og aðrir notendur á svæðinu eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir fyrir lokun, meðal annars með því að tryggja sér nægilegt kalt vatn til nauðsynlegra nota.
Orkuveita Húsavíkur biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda og þakkar fyrir sýndan skilning.
Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur