Fara í efni

Málstofa á Húsavík í tilefni baráttudags kvenna

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum, í samstarfi við Norðurþing og Alþýðusamband Íslands, stóðu fyrir opinni málstofu og pallborðsumræðum á alþjóðlegum baráttudegi kvenna sl. laugardag. 
Samstarfið var skipulagt af Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúa Norðurþingsins.

Yfirskrift málstofunnar var „Konur í nýju landi - okkar konur“.
Sjónum var beint að framlagi kvenna af erlendum uppruna til íslensks samfélags og stöðu þeirra hér á landi.
Málstofan fór fram í golfskálanum á Katlavelli á Húsavík og var mjög vel sótt.
Meðal fyrirlesara voru Guðrún Margrét Guðmundsdóttir jafnréttisfulltrúi ASÍ, Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar, Agnieszka Szczodrowska túlkur og starfsmaður Stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum og Aneta Potrykus formaður Verkalýðsfélags Þórshafnar.
Nele Marie Beitelstein fjölmenningafulltrúi Norðurþings, Aleksandra Leonardsdóttir sérfræðingur ASÍ í fræðslu og inngildingu, Fanný Cloé, íslenskukennari fyrir innflytjendur, Christin Irma Schröder verkefnastjóri hjá PCC, Sylwia Gręda, lögfræðingur, aðstoðarmaður daglegs reksturs hjá North Sailing tóku þátt í pallborðsumræðum.

Norðurþing þakkar öllum sem að málinu komu fyrir gott samstarf og fjölmörgum gestum kærlega fyrir komuna.