Menningarspjall fimmtudaginn 10. september
Menningarspjall Norðurþings hefst aftur eftir sumarfrí fimmtudaginn 10. september kl. 12:00 á Gamla Bauki.
Að þessu sinni verður SSNE með okkur og fjallar meðal annars um Uppbyggingarsjóð og önnur spennandi tækifæri og verkefni á sviði menningar og samfélagsþróunar.
Menningarspjallið er opinn viðburður og óformlegur vettvangur fyrir öll sem hafa áhuga á menningarmálum, vilja kynna sér hvað er í gangi í samfélaginu, deila hugmyndum eða hitta aðra sem starfa að menningu og skapandi verkefnum.
Ekkert formlegt fundarborð verður en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hér á Facebook-viðburðinn svo starfsfólk Gamla Bauks viti hversu margir koma.
Hver þátttakandi ber sjálfur kostnað af máltíðinni.
Við hvetjum öll áhugasöm til að koma, hlusta, spyrja spurninga og taka þátt í spjallinu. Fyrir frekari upplýsingar má senda tölvupóst á nele@nordurthing.is.
Hlökkum til að sjá sem flest!
Fyrir frekari upplýsingar má senda tölvupóst á nele@nordurthing.is.