Fara í efni

Mikil menningardagskrá á Raufarhöfn um helgina 16. - 18. maí

Mikil menningardagskrá verður á Raufarhöfn um helgina 16. - 18. maí. 

Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur á Raufarhöfn

Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur fagnar 30 ára afmæli á þessu ári og heldur að því tilefni þrenna tónleika, í Reykjavík, á Akureyri og á Raufarhöfn. Hópurinn fyllir heila flugvél sem flýgur norður yfir heiðar og hefur viðkomu á Akureyri þar sem fyrri tónleikar norðanlands verða haldnir. Að þeim loknum er ferðinni heitið til Húsavíkur þar sem siglt verður til Flateyjar og að lokum til Raufarhafnar þar sem síðustu tónleikarnir verða haldnir. 

Kórinn er skipaður 100 konum á ýmsum aldri og úr ýmsum krikum þjóðfélagsins. Kórinn hefur ferðast víða, bæði innanlands og erlendis en á afmælisárinu var ákveðið að íbúar heimalandsins fengju að njóta þess sem kórinn hefur fram að færa. Léttsveitin einbeitir sér að mestu á tónlist í léttum stíl. Íslenskar og erlendar dægurperlur eftir höfunda eins og Bubba Mortens, Magnús Eiríksson, Gunnar Þórðarson, Joni Mitchell, U2, Eurythmiccs  eru á boðstólum þetta vorið.

Stjórnandi kórsins er Gísli Magna og sér hann um að útsetja langflest lögin sem kórinn flytur. Með í för verður píanóleikarinn Arnhildur Valgarðsdóttir.

Tónleikarnir fara fram í Félagsheimilinu Hnitbjörgum laugardaginn 17. maí  kl. 17:00. Miðasalan verður við innganginn og kostar miðinn 3.000 kr. Verður eldri borgurum og félögum í kórum norðanlands boðinn sérstakur afsláttur, eða 2.500 kr. miðinn.

Kórinn mun verja laugardeginum á Raufarhöfn og heimsækir Heimskrautsgerðið og lýsistankana, en þar verður hljómburðurinn kannaður með því að taka nokkur lög áður en haldið verður í félagsheimilið.

Frystihússtelpur snúa aftur

Í tengslum við komu kórsins verður sýningin „Frystihússtelpur snúa aftur“ haldin. 

Ása Tryggvadóttir og Jóhanna V. Þórhallsdóttir opna sýningu á myndverkum og leirmunum, að Hótel Norðurljósum þennan sama dag. Þær hafa um árabil rekið saman Artgallerý 101 í Reykjavík og sýna nú í fyrsta sinn verkin sín í sameiningu. Á föstudaginn 16. maí munu Jóhanna Þórhallsdóttir og Óttar Guðmundsson heimsækja eldri borgara í Breiðablik og bjóða upp á fræðslu um Sigurð Breiðfjörð og slá á létta strengi með rímnakveðskap.

Ljósmyndasýningin „Sléttan, Yzta Annesið

Ljósmyndasýningin „Sléttan, Yzta Annesið“ verður opin laugardaginn 17. maí í Óskarsbragga. Verkið er ljósmyndaverk um Melrakkasléttu á Norðausturlandi. Innblásið af þjóðsögum og viðburðasögum fortíðar dregur verkið fram ljóðrænt yfirbragð landslags Melrakkasléttu í formi ljósmynda og varpar fram íhugun um hvernig umhverfið endurspeglar íbúa og líf þeirra í tímans rás.

Sléttan, Yzta Annesið hefur þá sérstöðu að verða að sýningu í sama samfélagi og landslagi og það var skapað í. Sýningin verður sett upp á Raufarhöfn, í Óskarsbragga sem var verbúð á síldarárunum, tímum mestu uppbyggingar og góðæris í sögu þorpsins. Innan veggja gömlu verbúðarinnar sem verið er að byggja upp mætast nú list, sagan og nútíminn.