Munum leiðina
20.05.2025
Fréttir
Víða um land má sjá fjólubláa bekki en tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu.
Alzheimersamtökin á Íslandi standa á bak við verkefnið og hafa fengið sveitarfélög með sér í lið.
Nú hefur Norðurþing bæst í hópinn og er bekkurinn staðsettur á Stangabakkanum á Húsavík.
Árið 2024 fór fram fyrsta bekkjarganga Alzheimersamtakanna.
Bekkjargangan er liður í því að stuðla að líkamlegri og félagslegri virkni sem eru mikilvægir þættir almennrar heilsu. Rannsóknir hafa einnig sýnt að með líkamlegri og félagslegri virkni getum við meðal annars minnkað líkur á heilabilun, hægt á framgangi sjúkdóma sem valda heilabilun og einnig minnkað einkenni.