Nemendur á Grænuvöllum færðu sveitarstjóra bréf með ósk um nýjan kastala
Nemendur á Árholti, elstu deild leikskólans Grænuvalla, heimsóttu Bergþór Bjarnason sveitarstjóra sl. föstudag til að afhenda honum bréf.
Tilefnið var að eitt af leiktækjum leikskólans gaf sig í síðustu viku og þurfti því að loka því tímabundið. Börnin ákváðu að nýta sér lýðræðisleg vinnubrögð og leita beint til sveitarstjórans með ósk um aðstoð.
Krakkarnir höfðu undirbúið sig vel fyrir fundinn. Þau teiknuðu upp hugmyndir að draumakastala fyrir leikskólalóðina svo ekki þyrfti að hefja vinnuna frá grunni ef ráðist yrði í endurnýjun leiktækja.
Í bréfi barnanna stóð:
„Kæri Beggi bæjarstjóri.
Við erum krakkarnir á Árholti, elstu deildinni á leikskólanum Grænuvöllum.
Okkur langar rosalega mikið í nýjan kastala á lóðina okkar. Getur þú hjálpað okkur?
Við erum búin að teikna draumakastalann okkar til að koma með hugmyndir.“
Kær kveðja“
Öll börnin skrifuðu undir bréfið og afhentu sveitarstjóranum það formlega.
Norðurþing þakkar börnunum fyrir frumkvæðið og metnaðinn sem þau sýndu með erindinu. Markmiðið er að bæta aðstöðuna á leikskólalóðinni og gera leiktækin örugg og skemmtileg fyrir börnin sem allra fyrst.


Hér má sjá nokkrar af þeim hugmyndum sem börnin komu með.