Netaveiðileyfi göngusilungs í sjó fyrir landi Húsavíkur 2025
Norðurþing auglýsir laus netaveiðileyfi göngusilungs í sjó fyrir landi Húsavíkur.
Veiðisveiðin eru 10 og eru þau fyrirfram skilgreind.
Hvert veiðileyfi veitir rétt til lagningu á einu neti á hverju svæði.
Veiðin er háð þeim lögum og reglugerðum sem gilda um veiðar á göngusilungi.
Sækja skal um veiðileyfi rafrænt á vefsíðu Norðurþings undir EYÐUBLÖÐ.
Þar er einnig að finna upplýsingar um veiðisvæði, lög og reglugerðir um netaveiði á göngusilungi.
Leyfisgjald fyrir hvert veiðileyfi er 12.000 kr. og greiðist við afhendinu leyfis og fylgigagna.
Verði umsóknir fleiri en leyfi fyrir hvert veiðisvæði verður dregið úr umsóknum.
Umsóknarfrestur er til 16:00 föstudaginn 30. maí.
Úthlutun leyfa fer fram mánudaginn 2. júní kl. 14:00 á skrifstofu Norðurþings, Garðarsbraut 5.