Norðurþing efnir til nafnasamkeppni
Norðurþing efnir til nafnasamkeppni og óskar eftir hugmyndum að nafni á nýju frístunda- og félagsmiðstöðvarhúsi á Húsavík sem og nafni á frístundarstarfið.
Framkvæmdir við nýtt húsnæði frístundar- og félagsmiðstöðvar við Borgarhólsskóla miðar vel áfram og stefnt er að því að húsnæðið verði tekið í notkun í október.
Af því tilefni leitum við til íbúa eftir hugmyndum að nöfnum. Gaman væri ef tillögur myndu fanga anda starfseminnar og endurspegla það lifandi samfélag sem þar mun dafna.
- Annars vegar er óskað eftir tillögum að nafni á nýju húsi sem mun meðal annars hýsa frístund og félagsmiðstöð.
- Hins vegar er óskað eftir tillögum að nafni fyrir starfsemi frístundar.
Við hvetjum börn, ungmenni og fullorðna til að taka þátt og senda inn tillögur.
Nafnið á húsinu getur tengst sögu svæðisins, náttúru, menningu, samveru eða öðru sem einkennir Norðurþing eða starfið sjálft.
Hvernig sendi ég inn tillögu?
- Sendu inn eina eða fleiri hugmyndir að nafni í gegnum eftirfarandi hlekk;
SENDA INN TILLÖGU - Skrifaðu stutta skýringu með á hugmyndinni, af hverju þú valdir þetta nafn.
Ekki skilyrði / má sleppa.
Val á nafni
Að loknum innsendingarfresti munu stjórnendur velferðarsviðs velja nokkur nöfn úr innsendum tillögum sem þykir henta nýju húsinu best sem síðan verður kosið um af nemendum Borgarhólsskóla og Framhaldsskólanum á Húsavík.
Við leggjum áherslu á skapandi hugmyndir sem höfða til barna og ungmenna og endurspegla tilgang og hlutverk hússins.
Við vonumst til að fá fjölbreyttar og skemmtilegar hugmyndir og bjóðum öllum að taka þátt í að móta samfélagið og velja nafn á þetta nýja samkomuhús fyrir unga íbúa Norðurþings.
Sendu inn þína tillögu og taktu þátt, hægt verður að senda inn tillögur til og með 5. oktbóber n.k.