Norðurþing og Íþróttafélagið Þingeyingur gera þriggja ára samstarfssamning
Norðurþing og Íþróttafélagið Þingeyingur hafa undirritað nýjan þriggja ára samstarfssamning sem ætlað er að styrkja enn frekari stoðir undir starfsemi félagsins og efla íþróttastarf og hreyfingu í sveitarfélaginu.
Samningurinn felur í sér að Íþróttafélagið Þingeyingur tekur yfir umsjón og ræstingar í íþróttahúsunum í Lundi og á Kópaskeri. Með þessu er markmiðið að efla nýtingu húsanna og styrkja daglegt utanumhald íþróttastarfs á svæðinu.
Samkvæmt samningnum heldur svokallað hreyfiverkefni áfram í samþætting skóla-,frístundar- og íþróttastarfs, þar sem skipulagðar íþróttaæfingar fara fram bæði innan skólatíma og í lengdri viðveru barnanna. Jafnframt verður unnið að því að auka þátttöku yngri barna með því að bjóða tveimur elstu árgöngum leikskólabarna upp á eina æfingu í viku.
Þá er einnig gert ráð fyrir skipulagðri hreyfingu fyrir eldri borgara, einu til tveimur sinnum í viku, með það að markmiði að efla heilsu og vellíðan íbúa á efri árum.
Íþróttafélagið Þingeyingur mun jafnframt halda utan um sumarfrístund í Öxarfirði. Stefnt er að því eftir fremsta megni að bjóða upp á þá þjónustu í sumar, nánari upplýsingar um það munu liggja fyrir þegar ráðið hefur verið í nýtt starf hjá félaginu.
Íþróttafélagið mun einnig sinna ýmsum verkefnum sem tengjast starfsemi félagsins, þar á meðal skipulagi og þróun íþróttastarfs fyrir fólk á öllum aldri. Með því gefst tækifæri fyrir Íþróttafélagið Þingeying að efla sína starfsemi og virkja félagsmenn á svæðinu.
Gert er ráð fyrir að samningurinn geri félaginu kleift að ráða starfsmann í 100% stöðugildi til að sinna framangreindum verkefnum og verður starfið auglýst á næstu dögum. Yfirfærsla verkefna mun eiga sér stað á komandi vikum og mánuðum og verða félagsmenn upplýstir eftir því sem verkefnin færast yfir til Íþróttafélagsins Þingeyings. Nú þegar hefur Þingeyingur tekið að sér umsjón og ræstingar í Íþróttahúsinu á Kópaskeri. Þingeyingur heldur því utan um aðgang og árskort í Íþróttahúsið á Kópaskeri og má nálgast frekari upplýsingar um það á facebook síðu félagsins. Tengiliður félagsins þar er Jóhannes Gestsson.
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, segir samninginn mikilvægt skref í að efla íþrótta- og hreyfistarf í sveitarfélaginu. „Íþróttastarf og hreyfng skiptir miklu máli fyrir heilsu og vellíðan íbúa á öllum aldri. Með þessum samningi erum við að styðja við öflugt starf Íþróttafélagsins Þingeyings og skapa betri grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í sveitarfélaginu,“ segir Katrín.
Brynjar Þór Vigfússon, formaður Þingeyings segir „Fyrir lítið og nýtt félag er þetta stór og góður samningur sem tryggir stöðu félagsins bæði í íþrótta- og félagsstarfi ásamt því að lyfta faglegu starfi félagsins á hærra plan. Ég tel að félagið taki við stærra hlutverki en hingað til, samfélaginu til hagsbóta.“
Samningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs og hreyfingar á svæðinu og er ætlað að efla þátttöku og þjónustu fyrir íbúa á öllum aldri.
Samningurinn skapar sterka undirstöðu fyrir Þingeying til að halda áfram að vaxa og efla starf sitt – en ekkert gerist af sjálfu sér. Félagið þarf á öllum sínum félagsmönnum að halda í þáttöku í starfinu, bæði til að viðhalda því góða starfi sem unnið hefur verið og til að byggja ofan á það.
Því skora ég á þig, kæri Þingeyingur, að spyrja sjálfan þig einnar einfaldar en mikilvægrar spurningar:
Hvað get ég gert fyrir Íþróttafélagið Þingeying?