Norðurþing og TAA undirrita viljayfirlýsingu um álúrvinnslu á Bakka
Norðurþing og Transatlantic Aluminum (TAA) hafa undirritað viljayfirlýsingu um að kanna möguleika á uppbyggingu álúrvinnsluverksmiðju á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Verkefnið felur í sér gerð steypuskála fyrir endurunnið ál með allt að 90.000 tonna ársframleiðslu þegar fullum afköstum er náð og er gert ráð fyrir að framleiðslan verði m.a. notuð í tækni- og flugvélaiðnaði. TAA vinnur að verkefninu í samstarfi við Almex USA sem er sérfræðifyrirtæki í vinnslu á harðáli og búnaði því tengdu.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni munu aðilar vinna saman að frumathugunum og mati á helstu þáttum tengdu verkefninu. Stefnt er að því að viljayfirlýsingin þróist yfir í lóðar- og hafnarsamning, að undangenginni jákvæðri hagkvæmniathugun sem áætlað er að ljúki í lok ágúst 2026. Verkefnið fellur vel að stefnu grænna iðngarða á Bakka þar sem framleiðslan byggir á endurvinnslu og lágmörkun kolefnisspors.