Fara í efni

Norðurþing og Völsungur hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning

Norðurþing og Völsungur hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning.

Fyrri samningur rann út um síðastliðin áramót og núverandi samningur gildir út árið 2025
Samningurinn fjallar um að Völsungur fái fjárhagslegan stuðning til að bjóða börnum og unglingum skipulagt íþróttastarf undir leiðsögn vel menntaðra og hæfra leiðbeinenda þar sem lýðheilsa og forvarnargildi íþrótta er höfð að leiðarljósi.

Einnig að hlúa að keppnis- og afreksíþróttafólki þannig að það geti náð sem bestum árangri.

Það er ánægjuefni að endurnýja samninginn og ástæða er taka fram hversu vel gekk í samningaviðræðunum.

Samninginn má skoða hér