Fara í efni

Ný heimasíða iðnaðarsvæðisins á Bakka

Ný heimasíða iðnaðarsvæðisins á Bakka hefur nú verið opnuð á slóðinni bakki.nordurthing.is. Markmið síðunnar er að kynna þau tækifæri sem felast í uppbyggingu á svæðinu og veita skýra og aðgengilega yfirsýn yfir innviði, þjónustu og samfélagið sem styður við starfsemi þar.

Samhliða opnun nýrrar heimasíðu hefur stjórn Græns iðngarðs á Bakka tekið ákvörðun um að breyta nafni og vörumerki svæðisins. Heitið Árbakki víkur nú fyrir einfaldara og skýrara nafni, Bakki, þannig að á íslensku er talað um iðnaðarsvæðið á Bakka en á ensku verður talað um Bakki Industrial Park. Þessi breyting er gerð þar sem Bakki hefur fest sig í huga fólks þegar er talað um svæðið og er því talið skýrara nafn fyrir svæðið.

Á nýju heimasíðunni er sérstaklega lögð áhersla á að tala inn í framtíðarverkefni á Bakka. Þar er upplýsingum miðlað á skipulegan hátt til fyrirtækja og fjárfesta sem hyggja á uppbyggingu eða starfsemi á svæðinu, meðal annars með því að hjálpa þeim að skilja þá innviði sem þegar eru til staðar, svo sem orku-, hafnar- og flutningsmannvirki. Jafnframt er fjallað um samfélagið í kring, þjónustu, mannauð og þau tækifæri sem felast í því að starfa á Bakka.

Með nýrri heimasíðu og endurnýjuðu vörumerki er stigið skref í áframhaldandi þróun iðnaðarsvæðisins á Bakka og leitast við að skapa skýra, sameiginlega sýn á framtíð svæðisins.