Fara í efni

Ný vefsíða Norðurþings

Velkomin á nýja vefsíðu Norðurþings.
Á nýju vefsíðunni má finna ýmsar nýjungar sem nýtast íbúum sveitarfélagsins svo sem:

  • Ábendingagátt. Þar geta íbúar skilað inn ábendingum til sveitarfélagsins á einfaldan hátt og fylgigögnum sem á við. 
  • Rafrænt sorphirðudagatal. Þar stimpla íbúar inn heimilisfangið sitt og fá upplýsingar um næstu sorplosanir.
  • Vöktun málsnúmera. Hægt er að vakta ákveðin málsnúmer og fá tölvupóst með afgreiðslu mála.
  • Upptaka sveitarstjórnafunda. Í fundargerðum sveitarstjórnar er hægt að horfa á fundinn.
  • Aðgengilegra viðmót

Vefsíðan er unnin af Stefnu og starfsmönnum sveitarfélagsins.