Fara í efni

Nýr opnunartími á bókasafninu á Raufarhöfn

Bókasafn Norðurþings á Raufarhöfn lengir opnunartímann og verður opið á eftirfarandi tímum frá og með 1. október.
Bókasafnið er staður fyrir alla, við bjóðum ný og gömul andlit velkomin til að koma við, fá lánaðar bækur, lesa eða bara kíkja við í stutt spjall.

Opnunartími:

Þriðjudaga 14:00-16:30

Miðvikudaga 14:00-16:30

Fimmtudaga 14:00-16:00

og þriðja laugardag hvers mánaðar verður opið frá 12:00-16:00

Á næstu mánuðum ætlum við að halda smærri viðburði á opnum laugardögum.

Bókasafnið er staðsett í skólahúsinu.