Fara í efni

Nýtt hús frístundar og félagsmiðstöðvar á Húsavík vígt - öll velkomin!

Íbúum Norðurþings er boðið að fagna með okkur vígslu á nýju húsi fyrir frístund yngstu nemenda grunnskólans og félagsmiðstöð unglinga á Húsavík.

Vígslan fer fram fimmtudaginn 15. október kl. 16:30.

Að lokinni vígslu gefst íbúum kostur á að ganga um húsið, skoða aðstöðuna og kynna sér nýja umgjörð fyrir frístundastarf barna í 1.–4. bekk og félagsstarf unglinga.

Í tilefni dagsins verður jafnframt tilkynnt hvaða nafn húsið fær!

Við hlökkum til að taka á móti íbúum Norðurþings og sýna ykkur þetta nýja hús sem verður vettvangur samveru, sköpunar, leikja og félagsstarfs fyrir börn og unglinga.

Verið hjartanlega velkomin!

📍 Húsavík
🗓️ Fimmtudagurinn 15. október
🕟 Kl. 16:30