Öll losun sorps er með öllu óheimil á brennustæði Norðurþings
19.05.2026
Tilkynningar
Að gefnu tilefni vill Norðurþing ítreka á öll losun er óheimil á brennustæði Norðurþings er með öllu óheimil.
Brennusvæði Norðurþings er ekki opið sorpsvæði fyrir íbúa.
Íbúar hvattir til að nota viðeigandi sorphirðu og/eða endurvinnslustöðvar.
Sá sem hefur nýlega hent efni á brennustæðið á Húsavík án leyfis er beðinn um að fjarlægja það sem fyrst.
Ruslakort er hægt að nálgast á skrifstofu sveitafélagsins.
Fyrir frekari upplýsingar um sorphirðu er hægt að hringja í síma 464-6100, sent póst á netfangið nordurthing@nordurthing.is eða kynnt sér málin HÉR.
- Verkstjóri í Þjónustumiðstöð