Fara í efni

Opið er fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð Norðurlands Eystra - Ráðgjafar á ferð

Opið verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra til kl. 13:00 fimmtudaginn 17. nóvember 2022.

Úthlutun fer fram í lok janúar 2023. Veittir eru styrir í eftirfarandi þremur flokkum:

  • Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir á sviði menningar
  • Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Í takt við sóknaráætlun landshlutans er lögð sérstök áhersla á verkefni er snúa að umhverfismálum.

Á heimasíðu SSNE má finna heimasvæði Uppbyggingarsjóðs þar sem hugmyndasmiðir og áhugasamir um fjármagn Sóknaráætlunar geta lesið sér til um eðli sjóðsins og hvað þarf að hafa í huga við umsóknarskrifin.

Dagana 25. -28. október ferðast ráðgjafar Uppbygginarsjóðs Norðurlands eystra um landshlutann og bjóða upp á viðtalstíma og persónulega ráðgjöf. Tímarnir eru opnir en okkur þætti gott að vita af þér og fá yfirsýn yfir hversu margir mæta, því biðjum við þig um að skrá þig með nafni og velja staðsetningu. Þá verður allt skipulag skilvirkara. Aftur á móti þá fá hugmyndasmiðir stundum skyndihugdettur, við vitum það og því eru allir velkomnir þó svo viðkomandi hafi ekki skráð sig.

Skráningarhlekkur: https://forms.office.com/r/vYQTJam4UJ

FACEBOOK VIÐBURÐUR



Ráðgjafar Uppbyggingarsjóðs eru almennt staðsettir á Akureyri og Húsavík og hægt að panta hjá þeim stað- eða fjarfundi:

  • Akureyri: Elva
  • Húsavík: Ari Páll og Hildur
  • Allt starfsfólk SSNE getur veitt ráðgjöf og er með starfsstöðvar Akureyri, Bakkafirði, Dalvík, Grímsey, Húsavík, Ólafsfirði, Raufarhöfn, Siglufirði