Fara í efni

Opinn íbúafundur um samfélagsgróðurhús á Húsavík

 

Þann 5. september nk. verður opinn íbúafundur um samfélagsgróðurhús á Húsavík.

Eimur, SSNE og Hraðið boða til opins kynningarfundar í fundarsal Fosshótels Húsavík milli kl 16:30 og 18:00 

Efni fundarins er möguleg uppbygging á samfélagsgróðurhúsi við Ásgarðsveg á Húsavík. Hugmyndin er hluti af Evrópuverkefninu Crowdthermal sem Eimur tekur þátt í.
 
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á ræktun lands og lýðs til þess að koma og taka þátt á fundinum


Hér má finna Facebook viðburð