Orkuveita Húsavíkur heldur áfram viðgerðum
27.04.2026
Tilkynningar
Í vikunni mun Orkuveita Húsavík halda áfram að gera við bilun sem kom upp í heitaveitu í byrjun apríl mánaðar. Um er að ræða sömu lokun og var í byrjun mánaðarins og má því reikna með að heitt fari af á sama svæði og áður, það er ofan Þverholts. Þrýstingur á heitu vatni gæti fallið eitthvað niður í þeim götum sem eru næst Þverholti. Ekki er komin nákvæm tímasetning á hvenær vatnið verður tekið af en reikna má með að Orkuveitan byrji að grafa eftir hádegi í dag, 27.apríl.
Á myndinni má sjá svæðið sem Orkuveitan mun þurfa að grafa upp.