Orkuveita Húsavíkur og Syntholene hafa gert með sér samning um 500 m2 lóð
Orkuveita Húsavíkur og bandaríska nýsköpunarfyrirtækið Syntholene hafa gert með sér samning um 500 m2 lóð, við Orkuveituna, undir tilrauna- og sýningarverksmiðju Syntholene. Jarðvarmi og rafmagn verða nýtt til framleiðslu á gervieldsneyti, sem er íblöndunarefni fyrir flugvélaeldsneyti og lækkar kolefnisspor flugs verulega.
Syntholene mun hefja undirbúning og framkvæmdir á lóðinni á næstunni, og er gert ráð fyrir að verksmiðjan muni hefja framleiðslu síðsumars. Um tímabundið vísinda- og iðnaðarverkefni er að ræða, ætlað til að sannreyna afköst kerfisins við raunverulegar rekstraraðstæður. Á leyfistímanum hyggst félagið framkvæma um 1.000 klukkustunda rekstrarprófun, með það að markmiði að afla lykilgagna til verkfræðilegrar hagræðingar, styðja við leyfisferla og staðfesta möguleika á stækkun í atvinnuskyni.
Syntholene hefur gert samkomulag við HD ehf. um að vera aðalverktaki við uppbyggingu og rekstur stöðvarinnar.
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings
„Sveitarfélagið Norðurþing, eigandi Orkuveitu Húsavikur, er stolt af því að styðja við uppbyggingu Syntholene á tilraunaverksmiðju Syntholene fyrir umhverfisvænan eldsneytisvalkost fyrir flugvélar. Markmið Syntholene um sjálfbærni og skynsamlega nýtingu jarðhitaorku til framleiðslu á umhverfisvænum lausnum til hagsbóta fyrir samfélagið fer saman markmið sveitarfélagsins Norðurþings.
Ég vona að þessi tilraunavinnsla sýni góðan árangur, hægt verði að stækka verkefnið og anna innlendri þörf fyrir flugvélaeldsneyti. Einnig vona ég að slík stækkun geti mögulega átt sér stað á iðnaðarsvæðinu á Bakka í framtíðinni.“
Dan Sutton, forstjóri Syntholene
„ Aðstaðan við Orkustöðina í Húsavík býður upp á einstaka samsetningu jarðhita, innviða, hæfs starfsfólks og pólitísks stuðnings. Hún veitir kjörinn upphafspunkt fyrir fyrstu sýningarstöð okkar og jafnframt skýra leið til stækkunar í einu jarðhitaríkasta svæði heims.
Syntholene stefnir að því að stuðla að langtíma efnahagslegri fjölbreytni á svæðinu á sama tíma og við vinnum að markmiði okkar um að framleiða afar hreint og samkeppnishæft gervieldsneyti.“
Nánari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu Syntholene hér.