Fara í efni

Óskað er eftir tilboðum í framkvæmdir við Grunnskólann á Kópaskeri

Sveitarfélagið Norðurþing óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við endurbætur á þaki og lagningu þakpappa á þá Grunnskólans á Kópaskeri auk endurnýjunar þakglugga.

Helstu magntölur í verkinu eru:

  • Endurnýjun/nýlögn þakpappa um 635 m2
  • Nýir þakgluggar 7 stk.
  • Viðgerðir á undirlagi þakpappa um 100 m2

Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2024.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með föstudeginum 15.desember 2023. Beiðni um afhendingu gagna skal send á netfangið rab@verkis.is

Tilboðin verða opnuð á skrifstofu VERKÍS að Garðarsbraut 26, 640 Húsavík þann 24. janúar 2024 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.