Öskudagur í Norðurþingi 2025
04.03.2025
Tilkynningar
Við viljum bjóða alla krakka velkomna til okkar til þess að syngja og fá að launum sælgæti.
Starfsfólk Norðurþings mun klæða sig upp og taka fagnandi á móti ykkur á eftirfarandi stöðum:
- Skrifstofur Norðurþings á Garðarsbraut 5 (notendur Miðjunnar taka á móti börnum við Krambúðina)
- Skrifstofa skóla- og félagsþjónustu á Túngötu 1
- Starfsmaður Norðurþings á Kópaskeri tekur á móti börnum í Skerjakollu
- Ráðhúsið á Raufarhöfn
- Áhaldahúsið á Raufarhöfn
- Sundlaug Húsavíkur
- Bókasafnið á Húsavík
- Slökkvistöð Húsavíkur
Sjáumst hress á Öskudaginn!