Fara í efni

Ráðið hefur verið í starf verkefnastjóra stafrænnar þróunar

Aðalgeir Sævar Óskarsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra stafrænnar þróunar Norðurþings.

Aðalgeir er með BSc í upplýsingatæknifræði frá Háskólanum á Akureyri.
Hann hefur starfað sem tæknimaður hjá Advania síðustu fjórtán ár og áður sem tæknimaður hjá TM Software.

Aðalgeir mun hefja störf hjá sveitarfélaginu á vormánuðunum. Við bjóðum hann velkominn til starfa.