Fara í efni

Ráðið hefur verið í stöðu félagsmálastjóra

Lára Björg Friðriksdóttir hefur verið ráðin í stöðu félagsmálastjóra Norðurþings.

Lára lauk meistaranámi í félagsráðgjöf til starfsréttinda frá Háskóla Íslands árið 2020. Hún hefur starfað hjá Norðurþingi undanfarin ár sem yfirfélagsráðgjafi í félagsþjónustu. Áður starfaði hún við aðhlynningu aldraðra, sem stuðningsfulltrúi á heimili fyrir fjölfatlaða fullorðna einstaklinga, í starfsnámi hjá félagsþjónustu Akureyrarbæjar með BA námi og í starfsþjálfun í meistaranámi hjá barnavernd Eyjafjarðar.

Lára mun hefja störf sem félagsmálastjóri strax á nýju ári og við bjóðum hana velkomna til þeirra starfa.