Fara í efni

Ráðið hefur verið í stöðu íþrótta- og tómstundafulltrúa

Hafrún Olgeirsdóttir hefur verið ráðin í stöðu íþrótta- og tómstundafulltrúa Norðurþings.

Hafrún lauk mastersnámi í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2016. Hún hefur verið aðalmaður í sveitarstjórn Norðurþings frá 2019 og er núverandi formaður byggðaráðs auk þess sem hún sat um tíma í fjölskylduráði. Hafrún hefur í gegnum menntun sína og setu í sveitarstjórn og nefndum sveitarfélagsins öðlast umtalsverða reynslu og þekkingu á opinberri stjórnsýslu og íþrótta- og tómstundamálum í sveitarfélaginu.

Hafrún mun hefja störf nú á haustmánuðum. Við bjóðum Hafrúnu velkomna til starfa.