Fara í efni

Ráðið hefur verið í stöðu yfirmatráðs skólamötuneytis Húsavíkur

Mikael Þorsteinsson hefur verið ráðinn í stöðu Yfirmatráðs skólamötuneytis Húsavíkur.

Mikael hefur starfað við matreiðslu á veitingastöðum og í skólum frá 2009. Síðustu þrjú ár hefur hann starfað sem matráður í Skólamötuneyti Húsavíkur.

Mikael mun flytja sig yfir í starf yfirmatráðar nú á næstu vikum.

Við bjóðum Mikael velkominn til starfa.