Fara í efni

Ráðning félagsmálastjóra Norðurþings

Tinna Ósk Óskarsdóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Norðurþings sem auglýst var 17. apríl sl.

Tinna er með BA próf í uppeldis- og menntunarfræði og MA próf í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands. Tinna hefur starfað við félagsþjónustu Norðurþings frá árinu 2015, fyrir utan veturinn 2019-2020 þegar hún starfaði sem stuðningsfulltrúi í Borgarhólsskóla. Hjá félagsþjónustunni hefur hún starfað í barnavernd og sem ráðgjafi í félagsþjónustu. Frá árinu 2022 hefur Tinna verið forstöðumaður í málefnum barna og fjölskyldna í Norðurþingi hjá félagsþjónustunni utan eitt ár þegar hún sinnti starfi félagsmálastjóra í fæðingarorlofi hans.

Hún býr því yfir víðtækri reynslu á sviði félagsþjónustu og hefur tekið virkan þátt í þróun hennar undanfarin ár, m.a. með þátttöku í innleiðingu laga um þjónustu í þágu farsældar barna.

Tinna hefur störf 1. júlí. Við bjóðum hana velkomna til starfa sem félagsmálastjóri Norðurþings