Fara í efni

Ráðning slökkviliðsstjóra Norðurþings

Norðurþing hefur gengið frá ráðningu í starf slökkviliðsstjóra sem auglýst var þann 18. mars síðastliðinn.

Henning Þór Aðalmundsson hefur hlotið starfið en hann uppfyllir allar þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram að mati ráðgjafa. Henning Þór er löggiltur slökkviliðsmaður og hefur starfað við slökkvilið í rúm tuttugu ár, þar af í fullu starfi frá árinu 2017. Hann hefur jafnframt gegnt starfi varaslökkviliðsstjóra hjá slökkviliði Norðurþings í um átta ár og verið settur slökkviliðsstjóri í tæpt ár. Hann uppfyllir því skilyrði um löggildingu og umfram lágmarkskröfu um reynslu í slökkviliði samkvæmt lögum nr. 75/2000. Einnig hefur hann lokið námi sem eldvarnaeftirlitsmaður og hefur starfað við eldvarnaeftirlit, úttektir og forvarnarstarf innan sveitarfélagsins. Reynsla hans af almennum brunavörnum, umsögnum vegna bygginga og eftirfylgni fellur vel að þeim verkefnum sem starfinu fylgja og sýnir haldgóða þekkingu á reglverki og framkvæmd brunamála.

Reynsla hans af rekstri og stjórnun er umtalsverð. Auk stjórnunarhlutverka innan slökkviliðsins hefur hann gegnt stjórnunarstöðum hjá Landhelgisgæslu Íslands, bæði á sjó og í flugdeild.

Henning Þór býr yfir sterkri leiðtogahæfni, góðri skipulagsfærni og ríkri færni í mannlegum samskiptum sem nýtast munu vel í starfi slökkviliðsstjóra.

Henning er búsettur á Húsavík, giftur Berglindi Rut Magnúsdóttur leikskólakennara og á þrjár dætur og eina afastelpu.

,,Ég er afar stoltur og þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt með ráðningu í starf slökkviliðsstjóra Norðurþings og hlakka til áframhaldandi samstarfs við starfsfólk og íbúa sveitarfélagsins“ segir Henning.

Henning er boðinn velkominn til starfa sem slökkviliðsstjóri Norðurþings.