Rafmagnslaust í hluta Kelduhverfis í gær, 4.mars.
05.03.2026
Tilkynningar
Rafmagnslaust varð í hluta Kelduhverfis í gær, 4.mars vegna bilunar í loftlínuspenni. Taka þurfti út loftlínuna frá Rifósi að Auðbjargarstöðum á meðan viðgerðum stóð.
Nokkuð greiðlega gekk að laga bilunina en rafmagnslaust var frá 18:10-19:24.
Ekki er búist við frekara rafmagnsleysi vegna þessa.