Fara í efni

Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum

Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2022 og skulu umsóknir sendar rafrænt á oldrunarrad@oldrunarrad.is eða til Öldrunarráðs Íslands, Snorrabraut 58, 105 Reykjavík.

Úr 5. gr. skipulagsskrár  Rannsóknarsjóðsins:
Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður.

Frekari upplýsingar veitir Jórunn Frímannsdóttir, formaður stjórnar Öldrunarráðs Íslands.
Fyrirspurnir sendist á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is