Fara í efni

Rithöfundurinn Joachim B. Schmidt á Raufarhöfn

Rithöfundurinn Joachim B. Schmidt var staddur á Raufarhöfn í vikunni þar sem hann var með upplestur bæði í Breiðabliki og í félagsheimilinu Hnitbjörgum.  Joachim hefur búið á Íslandi síðan árið 2007, hann hefur gefið út fjölmargar smásögur og þrjú skáldverk. Nýjasta bókin hans heitir Kalmann og gerist á Raufarhöfn.
Kalmann hefur hlotið frábæra dóma og komst á metsölulista Der Spiegel.

Nánar um bókina:
Kalmann Óðinsson, sjálfskipaður lögreglustjóri á Raufarhöfn, gengur um með kúrekahatt og Mauserskammbyssu sem amerískur afi hans komst yfir í Kóreustríðinu og verkar næstbesta hákarl á landinu. Kalmann er sérstæður, einfaldur og klókur í senn, sér lífið í kringum sig öðrum augum en annað fólk og er í nánu sambandi við náttúru og umhverfi. En svo hverfur valdamesti maður þorpsins, sem hefur líf þess í hendi sér og virðist flæktur í vafasamt athæfi, Kalmann finnur stærðar blóðpoll við Heimskautsgerðið og allt fyllist af lögreglu og fjölmiðlamönnum sem spyrja óþægilegra spurninga.

Viðburðurinn fékk styrk úr lista- og menningarsjóði Norðurþings