Samanburður á orkukostnaði heimila árið 2025
Byggðastofnun hefur gefið út skýrslu um árlegan kostnað við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni á flestum þéttbýlisstöðum landsins og í dreifbýli. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m2 að grunnfleti og 350m3. Við útreikninga er almenn rafmagnsnotkun og fastagjald tekin saman annars vegar og hitunarkostnaður hins vegar. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt gjaldskrám þann 1. september. Alls eru 92 byggðakjarnar í greiningunni og ná tölur fyrir þá aftur til ársins 2014. Auk þess er orkukostnaður fyrir dreifbýli án hitaveitu birtur í skýrslunni.
Hér má finna hlekk á skýrsluna: https://www.byggdastofnun.is/static/files/Orkukostnadur/2025/orkukostnadur-heimila-arid-2025.pdf
Úr skýrslunni:
„Á Raufarhöfn er húshitunarkostnaður viðmiðunareignar 265 þ.kr. Verð fyrir beina rafhitun lækkaði um 23,2% árið 2021 en hækkaði aftur um 16,4% árið 2024. Aðrir staðir á Norðurlandi eystra hafa hitaveitu. Á Kópaskeri er húshitunarkostnaður viðmiðunareignar frá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs 252 þ.kr. Á Húsavík, hjá Orkuveitu Húsavíkur er húshitunarkostnaður 120 þ.kr. og hefur lækkað um 14,3% frá 2014.
„Ef tekinn er saman heilarorkukostnaður, þ.e.a.s. raforku- og húshitunarkostnaður viðmiðunareignar á Norðurlandi eystra er heildarorkukostnaður á Kópaskeri 390 þ.kr. Á Raufarhöfn er heildarorkukostnaður 403 þ.kr. Þar lækkaði heildarorkukostnaður viðmiðunareignar um 22,1% árin 2018-2022 en sú lækkun er nokkurn veginn gengin til baka eftir 17,2% hækkun árið 2025. Lægsti heildarorkukostnaður fyrir viðmiðunareign á Norðurlandi eystra er á Húsavík 258 þ.kr.“