Samningar undirritaðir vegna tveggja uppbyggingarverkefna á Raufarhöfn
Innviðaráðherra hefur úthlutað samtals 170 milljónum króna til fjórtán verkefna víðs vegar um landið til að efla viðkvæmar byggðir. Verkefnin snúa öll að því að efla innviði, styðja við atvinnuskapandi þróun og styrkja byggðafestu, þar á meðal á norðausturhorninu. Tvö verkefni fengu veglegan styrk á Raufarhöfn.
Lýsistankarnir hlutu 8 milljóna króna framhaldsstyrk sem ætlaður er til að ljúka viðgerðum á þaki og koma upp merkingum. Um er að ræða mikilvæg skref til að gera mannvirkið fullnægjandi, öruggt og tilbúið til notkunar í menningar-, lista- og ferðaþjónustu og styrkja þannig nýtingu svæðisins til framtíðar.
Ráðhúsið – atvinnu- og samfélagssetur, sem hlaut 10 milljóna króna framhaldsstyrk. Styrkurinn nýtist til að ljúka endurbótum á húsnæðinu og skapa þar aðstöðu fyrir fjölbreyttari atvinnustarfsemi, með það að markmiði að laða að frumkvöðla og nemendur, efla menntunarstig og styðja við samfélagið með öflugum samveru- og vinnurýmum.
Katrín Sigurþjónsdóttir er reglulegur gestur í Ráðhúsinu á Raufarhöfn og tekur þar jafnan vinnudaga. Með því nýtir hún sjálf þá aðstöðu sem verið er að byggja upp í húsinu og undirstrikar þannig mikilvægi Ráðhússins sem virks atvinnu- og samstarfsvettvangs á staðnum. Áhugasamir geta fylgst með á facbooksíðu Ráðhússins.