Fara í efni

Sandfok á Kópaskeri í hvassviðri gærdagsins

Myndir sem bárust frá Kópaskeri í morgun sýna hvernig sandur dreifðist víða um bæinn eftir hvassviðrið sem gekk yfir svæðið í gær.  

Starfsmaður Norðurþings  tók myndir af svæðinu og segir að veðrið hafi verið afar hvasst og talið að nærri hafi verið stórstreymi, sem olli mikilli fjöru. Við þær aðstæður gat vindur feykt sandi langt upp á land.

Lítið varð um snjókomu en í stað þess virðist sandurinn hafa umkringt byggðina. Á myndum má sjá hvernig sandfok hefur sest á götur og í garða.