Sinfó í sundi!
27.08.2025
Tilkynningar
Sundlaugin á Húsavík og sundlaugin á Raufarhöfn taka þátt í viðburðinum:
Tónleikarnir verða sýndir í hljóði og mynd í sundlaug Húsavíkur
Tónleikarnir verða í hljóði í sundlaug Raufarhafnar
Íbúar eru hvattir til að mæta og njóta ljúfra tóna í pottinum eða í sundlauginni.
Klassíkin okkar fer fram í tíunda sinn í Eldborg í Hörpu föstudaginn 29. ágúst kl. 20:00 í samvinnu við RÚV.
Af því tilefni bjóða margar sundlaugar víða um land upp á viðburðinn Sinfó í sundi þar sem sent verður beint út frá tónleikunum á sundstöðum.
Sundlaugin á Húsavík og sundlaugin á Raufarhöfn taka þátt í viðburðinum:
Tónleikarnir verða sýndir í hljóði og mynd í sundlaug Húsavíkur
Tónleikarnir verða í hljóði í sundlaug Raufarhafnar
Íbúar eru hvattir til að mæta og njóta ljúfra tóna í pottinum eða í sundlauginni.
Klassíkin okkar ber að þessu sinni yfirskriftina – Söngur lífsins. Á tónleikunum flytja margir af okkar fremstu söngvurum tónlist sem tengist hinum ýmsu athöfnum okkar og viðburðum á lífsleiðinni; frá tregafullum kvöldsöngvum til glaðværra gamansöngva.
Einsöngvarar eru Dísella Lárusdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, GDRN, Ólafur Kjartan Sigurðarson
Pálmi Gunnarsson, Rebekka Blöndal og Valdimar Guðmundsson. Söngsveitin Fílharmónía mun einnig taka lagið. Það er Bjarni Frímann Bjarnason sem heldur um tónsprotann og kynnar eru Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson.