Fara í efni

Spennandi störf í Leikskólanum á Grænuvöllum á Húsavík laus til umsóknar

Spennandi tækifæri í Leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík
Leikskólinn Grænuvellir leitar að metnaðarfullu starfsfólki til að taka þátt í öflugu og skapandi starfi. Skólinn er átta deilda leikskóli staðsettur að Iðavöllum 1 á Húsavík.

Í leikskólanum eru 140-160 börn á aldrinum 1-6 ára.

Laus störf til umsóknar:

Þrír deildarstjórar (100% starf) - Sækja HÉR um Deildarstjórar óskast á leikskólann Grænuvelli - 50skills
Óskað er eftir leikskólakennurum í stöður deildarstjóra. Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til annarra umsækjenda með leyfisbréf til kennslu, aðra háskólamenntun og til starfsfólks með reynslu.
                    * Starfshlutfall: 100%
                    * Upphaf starfs: Ekki seinna en miðjan ágúst 2026.

Iðjuþjálfi (75% starf) Sækja HÉR um Iðjuþjálfi í 75% starfi - 50skills
Leitum að iðjuþjálfa/þroskaþjálfa í tímabundið starf vegna afleysinga.
                    * Tímabil: Október 2026 – september 2027.
                    * Starfshlutfall: 75%

Leikskólakennarar (100%) Sækja HÉR um Leikskólakennarar - 50skills
Óskað er eftir leikskólakennurum í fullar stöður.
                   * Starfshlutfall: 100%
                   * Upphaf starfs: Ekki seinna en miðjan ágúst 2026.

 

Um leikskólann og helstu áherslur:
Grænuvellir er framsækinn leikskóli þar sem vellíðan barna og starfsfólks er í fyrirrúmi. Skólinn er átta deilda og sérkennsluteymi.

Helstu áherslur í starfinu eru:

  • Jákvæður agi: Við vinnum samkvæmt uppeldisstefnunni Jákvæður agi (Positive Discipline).
  • STEM-menntun: Rík áhersla er á vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði í gegnum leik og könnun.
  • Leikur og læsi: Leikurinn er okkar aðal námsleið ásamt áherslu á málþroska og læsi.
  • Útikennsla: Við nýtum nærumhverfi okkar mikið til náms og leiks.

Umsóknarfrestur: 20. maí 2026

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, leikskólastjóri, í síma 464-6160 eða í gegnum netfangið siggavaldis@graenuvellir.is.