Staða á framkvæmdum við nýja Frístund við Borgarhólsskóla
Framkvæmdum við nýtt húsnæði Frístundar við Borgarhólsskóla miðar vel áfram.
Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á klæðningu innanhúss, frágang gólfefna og frágang við tengingu skólahússins við nýju viðbyggingunna.
Frágangur lóðar er jafnframt vel á veg kominn. Uppsetning steyptra setbekkja, lagning snjóbræðslu og jarðvinna í tengslum við nýtt leiksvæði gengur vel. Lítilsháttar tafir hafa orðið á framkvæmdinni, en þær eru óverulegar þegar litið er til umfangs verkefnisins í heild.
Markmið verktaka er að ganga frá hluta lóðarinnar þannig að aðgengi við skólahúsið að austanverðu verði tilbúið fyrir kjördag 29. ágúst næstkomandi.
Nýja húsnæðið mun skapa mun betri aðstöðu fyrir félags- og frístundurstarf barna og ungmenna í sveitarfélaginu. Með auknu rými, bættri aðstöðu og nútímalegu umhverfi skapast betri skilyrði fyrir fjölbreyttara starf og samveru. Verkefnið er því mikilvægt framfaraskref í uppbyggingu þjónustu við börn og ungmenni og styður við áframhaldandi þróun skóla- og frístundastarfs í sveitarfélaginu.
Stefnt er að því að nýbyggingin verði afhent starfsemi frístundar og félagsmiðstöðvar 1. október næstkomandi.
Undirbúningur vegna endurnýjunnar leiktækja á skólalóðinni.

Tengigangur yfir í Borgarhólsskóla

Aðstaða félagsmiðstöðvarinnar Túns