Fara í efni

Starf íþróttakennara við Borgarhólsskóla laust til umsóknar

Laust er til umsóknar starf íþróttakennara við Borgarhólsskóla.
Um er að ræða sund- og almenna íþróttakennslu fyrir 1.-10.bekk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kennsla í íþróttum og sundi
  • Skipulag náms og kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari
  • Viðbótarmenntun er kostur
  • Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
  • Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði, framtakssemi og sjálfstæði
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
  • Mjög góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli

Umsóknarfrestur til 21.maí
Sækja um HÉR í gegnum 50skills

Frekari upplýsingar veitir Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, threyk@borgarholsskoli.is