Fara í efni

Starf skólastjóra grunnskóla Raufarhafnar laust til umsóknar (framlengdur umsóknarfrestur)

Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn leik-og grunnskóli með alls um 8 nemendur þar sem uppeldisstefnan Jákvæður agi er höfð að leiðarljósi. Skólinn er í samstarfi við Rif rannsóknarstöð sem hefur aðsetur innan skólans. Einnig er samstarf við Öxarfjarðarskóla sem er í 62 km fjarlægð frá Raufarhöfn. Nemendum grunnskólans er ekið einu sinni í viku í Öxarfjarðarskóla þar sem þeir fá kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum auk tónlistarkennslu á vegum Tónlistarskóla Húsavíkur.

Fullt starf skólastjóra samrekins leik- og grunnskóla Raufarhafnar er laust til umsóknar.  Kjör og kennsluhlutfall er samkvæmt kjarasamningi. Leitað er að öflugum skólastjóra sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við starfsfólk, foreldra og nemendur. Jafnframt að styrkja stöðu skólans í nærumhverfinu með samstarfi við Öxarfjarðarskóla og aðrar stofnanir. Skólastjóri þarf að geta hafið störf í byrjun ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og lög um leik- og grunnskóla.
  • Stjórn og ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
  • Starfsmannamál, s.s. ráðningar, starfsþróun og vinnutilhögun.
  • Óskað er sérstaklega eftir skólastjóra sem er áreiðanlegur, hefur leiðtogahæfni, sýnir frumkvæði, er ábyrgur, skapandi og lausnamiðaður.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í leik- og grunnskóla.
  • Kennslureynsla á grunnskólastigi.
  • Kennslureynsla af samkennslu árganga er mikilvæg.
  • Þekking á leikskólastarfi er mikilvæg
  • Mikil samskiptahæfni, góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og aðlögunarhæfni.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Reynsla af stjórnun og/eða faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í leik- og/eða grunnskólastarfi er æskileg.
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina er kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2023.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings, jon@nordurthing.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsókna og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda ásamt prófskírteinum og leyfisbréfi.

Norðurþing áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.