Fara í efni

Starf skólastjóra Grunnskóla Raufarhafnar laust til umsóknar

Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn leik-og grunnskóli með alls um 11 nemendur þar sem uppeldisstefnan Jákvæður agi er höfð að leiðarljósi. Skólinn er í samstarfi við Rif rannsóknarstöð sem hefur aðsetur innan skólans. Töluvert samstarf er við Öxarfjarðarskóla sem er í 64 km fjarlægð frá Raufarhöfn bæði staðbundið og rafrænt. Nemendum grunnskólans er ekið einu sinni í viku í Öxarfjarðarskóla þar sem þeir fá kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum auk tónlistarkennslu á vegum Tónlistarskóla Húsavíkur.

Fullt starf skólastjóra samrekins leik- og grunnskóla Raufarhafnar er laust til umsóknar. Kjör og kennsluhlutfall er samkvæmt kjarasamningi.

Leitað er að öflugum skólastjóra sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við starfsfólk, foreldra og nemendur. Jafnframt að styrkja stöðu skólans í nærumhverfinu með samstarfi við Öxarfjarðarskóla og aðrar stofnanir.

Skólastjóri þarf að geta hafið störf í byrjun ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fagleg forysta og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og lög um leik- og grunnskóla.
  • Stjórn og ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
  • Starfsmannamál, s.s. ráðningar, starfsþróun og vinnutilhögun.
  • Óskað er sérstaklega eftir skólastjóra sem er áreiðanlegur, hefur leiðtogahæfni, sýnir frumkvæði, er ábyrgur, skapandi og lausnamiðaður.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í leik- og grunnskóla.
  • Kennslureynsla á grunnskólastigi.
  • Kennslureynsla af samkennslu árganga er mikilvæg.
  • Þekking á leikskólastarfi er mikilvæg
  • Mikil samskiptahæfni, góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og aðlögunarhæfni.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Reynsla af stjórnun og/eða faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í leik- og/eða grunnskólastarfi er æskileg.
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina er kostur.

Leiguhúsnæði er í boði á staðnum.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2024.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings, jon@nordurthing.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsókna og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda ásamt prófskírteinum og leyfisbréfi.

Norðurþing áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.

Gerð er krafa um hreina sakaskrá og heimild til að afla upplýsinga þar að lútandi.

Nánari upplýsingar veitir fræðslufulltrúi Norðurþings í síma 464-6123 eða með því að svara fyrirspurnum sem sendar eru á netfangið jon@nordurthing.is

Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi
og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.